ADHD Tök á tilverunni
Forsíða
Dagskrá
Fyrirlesarar
Um ADHD samtökin
Hvað er ADHD ?
Skráning
Skráning útdrátta
ADHD
25. og 26. september 2008,
Hótel Hilton Reykjavík Nordica

Í tilefni af 20 ára afmæli ADHD samtakanna verður haldin
ADHD ráðstefna 25. og 26. september 2008
                                                                                                               Hilton Reykjavík Nordica


ADHD samtökin eru til stuðnings börnum og fullorðnum með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir, sem og fjölskyldum þeirra. Í tilefni af 20 ára afmæli samtakanna á Íslandi verður haldin ráðstefna um ADHD 25. og 26.  september 2008 í samstarfi við fjölda aðila.

Markmið ADHD ráðstefnunnar er að miðla fræðslu og stuðla að aukinni þekkingu um ADHD hjá öllum sem koma að málefnum barna, unglinga og fullorðinna með ADHD.

Þema ráðstefnunnar er annars vegar skólaganga barna með ADHD og hins vegar fullorðnir með ADHD. Við val á fyrirlesurum var tekið mið af þessum áherslum. Að sama skapi mun annað kynningarefni taka mið af þessu þema.

AÐALFYRIRLESARAR:

Thomas E. Brown Ph.D
www.drthomasebrown.com

Kathleen Nadeau Ph.D
www.addvance.com

Sandra Rief M.A.
http://www.sandrarief.com/

Auk þess mun fjöldi íslenskra fyrirlesara flytja erindi á ráðstefnunni.

Að ráðstefnunni standa ADHD samtökin í samvinnu við: Barna- og unglingageðdeild Landspítalans, Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, Kennarafélag Reykjavíkur, menntamálaráðuneytið, Miðstöð heilsuverndar barna, fræðsluskrifstofu Kópavogs auk fjölmargra annarra fagaðila.

Í undirbúningsnefnd ráðstefnunnar eiga sæti : 

  • Ingibörg Karlsdóttir, ADHD samtökunum
  • Kristjana Ólafsdóttir, ADHD samtökunum
  • Björk Þórarinsdóttir, ADHD samtökunum
  • Tómas Jónsson, Fræðsluskrifstofu Kópavogs
  • Þorgerður L. Diðriksdóttir, Kennarafélagi Reykjavíkur
  • Gyða Haraldsdóttir, Miðstöð heilsuverndar barna
  • Páll Magnússon, Barna- og unglingageðdeild LSH
  • Ásgerður Ólafsdóttir, menntamálaráðuneytinu
  • Bryndís Halldórsdóttir, Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins
  • Elín Hoe Hinriksdóttir, BUGL

  • Undirbúningsnefnd ber ábyrgð á öllum undirbúningi ráðstefnunnar og framkvæmd hennar.


    Í bakhópi ráðstefnunnar eiga sæti :

  • Kristín Jónsdóttir, Félagi grunnskólakennara
  • Sólrún B. Kristinsdóttir, Símenntun Rannsóknir Ráðgjöf KHÍ
  • Hrund Logadóttir, grunnskólaskrifstofu Menntasviðs Reykjavíkur
  • Svandís Ingimundardóttir, Sambandi íslenskra sveitarfélaga
  • Kristrún Guðmundsdóttir, Skólastjórafélagi Íslands
  • Kristín Kristmundsdóttir, Geðvernd barna og unglinga
  • Hákon Sigursteinsson, Velferðarsviði Reykjavíkur
  • Bóas Valdórsson, Sálfræðingafélagi Íslands
  • Stefán J. Hreiðarsson, Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins
  • Grétar Sigurbergsson geðlæknir 
  • Herdís Zophoníasdóttir, Félagi náms- og starfsráðgjafa
  • Margrét Björnsdóttir, heilbrigðisráðuneytinu

  • Bakhópur er ráðgefandi um faglega hlið ráðstefnunnar og hugsaður til að tryggja að sem flest sjónarmið komi fram við undirbúning ráðstefnunnar. Jafnframt gegnir bakhópur mikilvægu hlutverki í kynningu á ráðstefnunni.


     
     
    ADHD samtökin - Háaleitisbraut 13 - 108 Reykjavík - Sími 581 1110 - adhd@adhd.is
    Gestamóttakan - Your Host in Iceland, Kirkjutorgi 6, 101 Reykjavík, sími: 551 1730,  farsími: 692 1730  
                                             gestamottakan@gestamottakan.is