Dear all,
I am writing on behalf of my Shipmates, my grandson & myself to say thank you for the wonderful reception you provided at the University before & during the July Conference. The warmth of your greetings and generous hospitality made us feel very welcome. Congratulations to you all for the care and friendship shown to the Convoy Veterans. I am of the opinion that the Conference arrangements were fantastic and a credit to you all.
The program and timings, though demanding, enabled the delivery of papers giving vital contributions from which we learnt a great deal. I am sure this Conference will set a hard act to follow in the future!
My best wishes to you and your families,
Ray BallVeteran participating in The Arctic Convoys Conference
Lancashire, UK
Gestamóttakan aðstoðaði okkar í Samtökum Tungumálakennara á Íslandi með skipulagningu alþjóðlegrar námstefnu: Sharing the Treasure Trove, sem haldin var
18. - 19. júní 2010. Starfsfólk Gestamóttökunnar fær mín bestu meðmæli í ráðstefnuþjónustu, þar sem reynsla þeirra og samvinnuhæfni skila sér í góðu starfi.
Ragnheiður Jóna Jónsdóttir
Formaður STÍL - Samtaka tungumálakennara
Dear Inga, Hjördís and Helga
On behalf of Ian Dent, General Manager - Distribution Europe, Turkey and Middle East, and the Timken Company, we would like to thank you for your outstanding support in making the 2006 Distributor Conference a great success!
Your dedicated professionalism, attention to details and quickness to accommodate our requirements, has highly contributed towards delivering an exceptional event and an unforgettable Icelandic experience for our customers.
Please extend the company gratitude to all your team members.
TAKK FYRIR and BLESS BLESS
Sincerely
Laura Ramaschi
Senior Marketing, Program Developer The TIMKEN company

Við skipulagningu stórs alþjóðlegs fundar sumarið 2003 fékk ég ómetanlega aðstoð frá Ingu Sólnes og starfsfólki Gestamóttökunnar. Ég leitaði því til þeirra aftur með Norsig ráðstefnuna í júní 2006 þar sem allt gékk upp hnökralaust. Ég mæli hiklaust með Gestamóttökunni með alla stærri og minni viðburði.
Jón Atli Benediktsson,
prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði við Háskóla Íslands

Gestamóttakan tók að sér að skipuleggja og halda utan um þing NPF (norrænna lýtalækna) 10. - 12. júní 2010. Í nánasta aðdraganda þingsins byrjaði Eyjafjallajökull að gjósa og styrktaraðilar héldu að sér höndum af ýmsum orsökum en með gríðarlegri eljusemi og faglegum vinnubrögðum varð raunin sú að enginn þátttakandi skráði sig frá ráðstefnunni og hún var haldin með glæsibrag, met þátttöku og jákvæðri fjárhagsstöðu.
Sérstaklega vil ég nefna hnökralausa móttöku abstracta og skipulag fyrirlestra sem var á heimsmælikvarða. Einnig held ég að “social programmið” verð seint toppað!
Hjartans þakkir fyrir samvinnuna,
Jens Kjartansson
- klínískur prófessor, yfirlæknir lýtalækningadeildar Landspítala

Þjónusta Gestamóttökunnar er bæði fagleg og persónuleg. Inga hafði veg og vanda af skipulagningu stórrar norrænnar félagsfræðiráðstefnu fyrir nokkrum árum og núna í vor höfðu Kristjana og Anna Katrín bæst í hópinn þegar við stóðum að alþjóðlegri ráðstefnu á vegum félags- og mannvísindadeildar HÍ. Báðar ráðstefnurnar tókust afbragðs vel og átti Gestamóttakan ekki síst þátt í því.
Mæli hiklaust með þjónustu Gestamóttökunnar!
Helgi Gunnlaugsson, Ph.D.
Prófessor í félagsfræði
Félagsvísindadeild Háskóla Íslands

Það er gott að vinna með Gestamóttökunni. Þar fer saman mikil reynsla, kunnátta, góð sambönd og persónuleg þjónusta. Get ég því hiklaust mælt með Gestamóttökunni, sem samstarfsaðila innan allra þátta skipulagningar á móttöku erlendra gesta.
Friðrik Ásmundsson Brekkan
leiðsögumaður
Mig langar til að mæla með Ingu Sólnes og starfsfólki hennar hjá Gestamóttökunni í sambandi við skipulagningu á alþjóðlegum ráðstefnum. Hennar ráðgjöf og reynsla var ómetanleg við skipulagningu og framkvæmd á alþjóðlegri ráðstefnu um heilablæðingar "Cerebral amyloid angiopathy: emerging concepts" sem var haldin í Háskóla Íslands, dagana 8.-11. ágúst 2007. Inga var alltaf jákvæð og tilbúin að koma með gagnlegar uppástungur og faglega ráðgjöf. Fjöldi þátttakenda (jafnvel nemendur) skrifaði bréf eftir ráðstefnuna og þakkaði fyrir góða ráðstefnu. Inga og hennar góða starfsfólk á stóran þátt í því.
Ástríður Pálsdóttir
Sérfræðingur
Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum
