| Um ADHD samtökin |
|
ADHD samtökin ADHD samtökin eru til stuðnings börnum og fullorðnum með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir. Samkvæmt rannsóknum glíma 7,5% barna við athyglisbrest og ofvirkni. Á Íslandi samsvarar það um 4500 börnum á aldrinum 3 - 18 ára. Um 50% þeirra eru áfram með ADHD sem fullorðin og skýra erfðir um 75 - 95% einkenna. Markmið ADHD samakanna er að börn og fullorðnir með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir mæti skilningi alls staðar í samfélaginu og fái þjónustu sem stuðlar að félagslegri aðlögun þeirra, möguleikum í námi og starfi og almennt bættum lífsgæðum. Skrifstofa samtakanna er að Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík í sama húsi og Ráðgjafarrmiðstöðin Sjónarhóll er til húsa og félögin sem standa að Sjónarhóli. En þau félög eru auk ADHD samtakanna, Landssamtökin Þroskahjálp, Umhyggja – til stuðnings langveikum börnum og Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra. • Upplýsinga- og fræðsluþjónusta; er veigamikill þáttur í starfi samtakanna, skrifstofa samtakanna er opin alla virka daga 11 mánuði ársins mánud. – fimmtud. kl. 10 – 15 og föstud. kl. 10 - 13. Upplýsingar og ráðgjöf er veitt í gegnum síma 581-1110 á sama tíma. Á skrifstofu samtakanna er bókasafn, greinar og gögn um málefnið. Vefsíða samtakanna www.adhd.is hefur verið í stöðugri þróun og er enn, á vefsíðunni er aðgengilegt efni um flest það sem tengist málefninu og linkar á aðrar gagnlegar vefsíður. • Fréttabréf; fréttabréf er gefið út 3svar á ári og sent öllum félagsmönnum og til um 1000 stofnana, fagaðila og sérfræðinga sem tengjast málefninu. Í fréttabréfi eru fræðslufundir auglýstir, ýmis tilboð, námskeið og stuðningshópar er kynnt, auk greinaskrifa og viðtala um málefnið. • Önnur útgáfa; í gegnum árin hafa samtökin staðið að ýmsri útgáfu um ADHD og skyldar raskanir. Haustið 2005 kom út barnabók um ofvirkan dreng. Samtökin stóðu jafnframt að útgáfu og dreifingu fjögurra vandaðra smárita um ADHD í samvinnu við Janssen- Cilag lyfjafyrirtækið. Eitt smáritið fjallar um kennslu nemenda með ADHD og var dreift til allra grunnskólakennara á landinu haustið 2005. Hin smáritin þrjú fjalla um; fjölskylduna og ADHD, unglinga með ADHD og þriðja smáritið er verkefnahefti fyrir börn og eru þau send öllum félagsmönnum. • Fræðsla, námskeið, hópvinna; fræðslufundir ADHD samtakanna eru jafnan vel sóttir. Á hverju ári eru haldnir fjórir til fimm fræðslufundir þar sem margir af helstu sérfræðingum hérlendis hafa haldið fræðsluerindi um ADHD hjá börnum, unglingum og fullorðnum. ADHD samtökin hafa í samstarfi við Eirð fræðslu- og ráðgjafarþjónustu um geðheilsu barna og unglinga skipulagt fræðslunámskeið fyrir foreldra barna með ADHD undanfarin ár. Námskeið og hópavinna; eftir efni og aðstæðum hverju sinni standa samtökin að sjálfshjálparhópum fyrir foreldra og fyrir fullorðna með ADHD, námskeiðum fyrir foreldra um uppeldi barna með ADHD og skyldar raskanir, sjálfsstyrkingarnámskeiðum fyrir fullorðna með ADHD og námskeiðum fyrir kennara og annað fagfólk sveitarfélaga. • Greiningar fullorðinna; á árinu 2005 réðust samtökin í tilraunaverkefni sem fólst í ráðningu sálfræðings í hálft starf til að sinna greiningum fullorðinna sem hugsanlega eru með ADHD. Með þessari ráðningu var fyrst og fremst verið að bregðast við ófremdarástandi vegna þess hversu fáir sérfræðingar gefa sig út fyrir að sinna þessum hóp. Sálfræðingur samtakanna hefur verið fastráðinn og sinnir greiningum fullorðinna. Greiningin felur í sér greindarpóf, persónuleikapróf og ADHD spurningalista, skýrsla með niðurstöðum er afhent á skilafundi, ráðgjöf og tilvísanir í kjölfarið. • Ráðgjafarmiðstöðin Sjónarhóll; vegna aðildar samtakanna að stofnun og rekstri Sjónarhóls hafa félagsmenn nú aðgang að sérhæfðri fjölskylduráðgjöf sem miðar að því að greiða götu fjölskyldnanna í flóknu umhverfi hinna ýmsu stofnana og þjónustuaðila. En eitt af markmiðum Sjónarhóls er að koma á samstarfi allra þeirra aðila sem geta tengst máli einnar fjölskyldu, sem sagt samþætting þjónustunnar og eftirfylgd. • Ráðstefnur og norrænt samstarf; ADHD samtökin hafa eftir efni og aðstæðum reynt að senda fulltrúa á helstu ráðstefnur um ADHD bæði hérlendis og erlendis. ADHD samtökin eru aðili að norrænu samstarfi sambærilegra félagasamtaka á hinum Norðurlöndunum. Samstarfsfundir eru haldnir árlega. |