Gestamóttakan
IcelandicEnglish
Forsíða | Starfsfólk | Ráðstefnur og fundir | Hvataferðir | Fyrirtækjaþjónusta | Samstarfsaðilar | Umsagnir | Verkefnalisti

Á döfinni

Nýleg verkefni

Fyrri verkefni

efst_01.jpg
Gestamóttakan - Upp á punkt og prik
Gestamóttakan – Your Host in Iceland - er ráðstefnu- og ferðaþjónustufyrirtæki, þar sem áhersla er lögð á persónulega og sérhæfða þjónustu.

Við skipuleggjum ráðstefnur, fundi og ferðir fyrir innlend og erlend fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök og einstaklinga.
Við veitum ráðgjöf varðandi bestu möguleikana hverju sinni. Við tökum á móti erlendum gestum, sækjum á flugvöllinn, bókum gistingu, skipuleggjum dægradvöl, kynnisferðir og annað skemmtilegt, hvort sem um er að ræða stærri eða minni hópa.
Við skipuleggjum hvers kyns viðburði, starfsmannaferðir, fundi og móttökur út um allt land.

Markmið okkar er að veita hágæða þjónustu, hvort sem í hlut eiga einstaklingar, hópar, fyrirtæki eða stofnanir. Við tökum mið af þörfum og óskum viðskiptavina okkar hverju sinni, með það að leiðarljósi að gera viðburðinn eða ferðina árangursríka, skemmtilega og ógleymanlega!

Þarfir viðskiptavinanna eru ólíkar og tilefnin margvísleg. Við sjáum til þess að allt standist upp á punkt og prik.


ferdamalastofa.mini.jpg





 


 
Gestamóttakan ehf | Þingholtsstræti 6 | 101 Reykjavík | Sími: 551 1730, GSM: 692 1730 | gestamottakan@gestamottakan.is

 
©2006 Cinq-grafík.